UM OKKUR
Við hönnum og teiknum fyrir þig!
Komdu með málin af eldhúsinu, baðinu, anddyrinu, svefnherbergjunum eða þvottahúsinu -
og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu í hæsta gæðaflokki.
Þitt er valið!
Þú velur um að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna.
Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir þá sem þess óska - fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
Allt á sama stað!
Þegar þú verslar við Fríform færðu alla þjónustu á sama stað, fullkomið úrval innréttinga og raftækja.
Sölumenn okkar búa yfir þekkingu og reynslu.
Við rekum eigið trésmíðaverkstæði, sömuleiðis eigið raftækjaviðgerðarverkstæði og höfum á að skipa hópi úrvals iðnaðarmanna; trésmiða, rafvirkja og jafnvel pípara ef með þarf. Markmið okkar er að veita úrvalsþjónustu.
